

Um Virkaðu bókarforlag
Virkaðu bókaforlag gefur út bækur sem hafa verið skrifaðar af Guðmundi G. Hauksyni. Þetta eru bæði skáldsögur og bækur sem byggja á hálfsannleik í bland við skáldskap. Sumar bækurnar tengjast persónulegri reynslu hans af mannlífi, fjölskyldulífi eða starfsumhverfi í gegnum tímann.
Guðmundur G. Hauksson hefur komið nálægt ýmsu á sýnum ársferli, starfað við fjölbreytta hluti og er vélfræðingur að menntu. Hann gekk í gegnum mikla reynslu í atvinnulífinu, var vélstjóri og Stöðvarstjóri í Mjólkárvirkjun í Arnarfirði á Vestfjörðum, rak markaðstorg Kolaportsins í sjö ár, var framkvæmdastjóri Vélsmiðju KÁ á Selfossossi, sinnti störfum sem markaðs- og sölustjóri í fjölmörgum fyrirtækjum og var um tíma formaður Miðborgarsamtaka Reykjavíkur.
Guðmundur tók mikinn þátt í félagslífi í gegnum áratugi og stóð að stofnun Samtaka um betri byggð, Skátafélagsins Vogabúa og Íþróttafélagsins Fjölnis í Grafarvogi þar sem hann var formaður fyrstu fimm árin. Var formaður Íbúasamtaka Grafarvogs og Miðborgarsamtaka Reykjavíkur og sat í stjórn hjá Frjálsíþróttaráði Reykjavíkur og í Félagi markþjálfa á Íslandi svo eitthvað sé nefnt.
Guðmundur gekk í gegnum krabbamein 58 ára sem tókst að lækna. Þetta hafði mikið að segja í hans lífi og eftir þetta vann hann nánast eingöngu að mannauðsmálum. Hann fór í grunnnám á Íslandi í markþjálfun og síðan framhaldsnám í Frakklandi, fór til Bandaríkjanna til að taka við umboði fyrir Gordon Training International á Íslandi og varð í framhaldinu framkvæmdastjóri Gordon Ísland www.gordon.is . Einnig lærði hann og fékk réttindi sem sérfræðingur í NBI hugsniði. Hann hefur lengi haldið úti eigin bloggsíðu www.sidferdi.is
Guðmundur ætlaði á eftirlaun 65 ára, en þá hitti hann Þráinn Þorvaldsson sem var að endureisa Krabbameinsfélagið Framför og starfaði þar sem framkvæmdastjóri í fimm ár.
Guðmundur er giftur Svanhildi I Jóhannesdóttur og þau eiga saman þrjú börn, þrjú tengdabörn og átta barnabörn
Síðustu árin hefur Guðmundur sinnt ritstörfum bæði hér á Íslandi og á Spáni þar sem hann dvelur stóran hluta ársins.
Virkaðu forlag gefur út hans bækur.

