top of page

Verðlisti fyrir fólk 60+ sem vill meira spennandi íf

42-69789266.jpeg

Þjónustan hjá Virkaðu markþjálfun byggir á virði ferlisins. Þú ert ekki bara að kaupa sex viðtöl (6 skipta grunn pakki) eða heildstæða þjónustu með undirbúningi, vinnubók, verkefnum, eftirfylgni og persónulegri áætlun (12 skipta Premium pakki). Þú ert að kaupa persónulega þjónustu til að móta meira spennandi framtíð sem byggir á fagmennsku, trausti og einstaklingsmiðaðri nálgun og með alveg skýrt hvað þú færð fyrir peninginn.

Þrír þjónustupakkar

1. KYNNINGARTÍMI - Verð: 0 kr.

2. GRUNNUR - Nýtt upphaf- Verð: 84.900 kr.

  • 6 einstaklingsviðtöl (60 mín.)

  • Persónulegt stöðumat

  • Markmiðasetning

  • Persónuleg aðgerðaáætlun

Í þessum pakka vinnum við saman að því að:
 

✓ kortleggja núverandi stöðu

✓ finna styrkleika þína og tækifæri

✓ setja skýr og raunhæf markmið

✓ búa til persónulega aðgerðaáætlun

✓ styrkja nýjar venjur

✓ meta árangur og skipuleggja næstu skref.
 

Við lok pakkans hefur þú skýra stefnu um stöðuna, markmið og aðgerðaráætlun

3. PREMÍUM - Farðu alla leið  - Verð: 159.000 kr.

  • 12 skipta heildarferðalag (grunnpakki + framhaldspakki)

  • Persónulegt stöðumat

  • Markmiðasetning

  • Persónuleg aðgerðaáætlun

  • Vinnubók

  • Eftirfylgni milli tíma

  • Síma- og/eða tölvupóstsstuðningur

  • Lokaskýrsla og áframhaldandi áætlun

Fyrstu  6 tímana vinnum við saman að því að:
 

✓ kortleggja núverandi stöðu

✓ finna styrkleika þína og tækifæri

✓ setja skýr og raunhæf markmið

✓ búa til persónulega aðgerðaáætlun

✓ styrkja nýjar venjur

✓ meta árangur og skipuleggja næstu skref.

Þegar grunnurinn hefur verið lagður höldum við áfram í 6 tíma að byggja ofan á þann árangur sem hefur náðst.

Áhersla er lögð á að:

✓ styrkja sjálfstraust

✓ yfirvinna hindranir

✓ aðlaga markmið eftir þörfum

✓ viðhalda góðum venjum

✓ efla lífsgæði til lengri tíma

Við lok Premium pakkans hefur þú skýra stöðu, stefnu, markmið og aðgerðaráætlun. Þú ert komin/n með verkfæri, styrk og stöðu til að fara alla leið í lífinu og skapa þér meira spennandi líf til framtíðar.

 

Verðskrá að öðru leiti

Þjónusta                                             Verð                                             

Ókeypis kynningartími (60 mín.)              0 kr.

Stakur markþjálfunartími (60 mín.)  15.900 kr.

Grunnpakki – 6 skipti                       84.900 kr.

Framhaldspakki – 6 skipti                79.900 kr.

Viðhald – mánaðarlegur tími          13.900 kr.

Viðhald – 6 skipta árspakki             72.000 kr. (12.000 kr./tími)
 

Annað

  • Hjónapakki, tveir einstaklingar fá sitt eigið markþjálfunarferli með 20% afslætti ef þeir bóka samtímis.

  • Greiðsludreifing: 6 mánaðarlegar greiðslur án vaxta.

  • 30% afsláttur fyrir endurkomu viðskiptavini sem halda áfram í viðhaldi.

2.jpeg-3-1024x672.jpg

H​vernig virkar markþjálfun?

Markþjálfun er ákveðin aðferðarfræði sem gerir þig virkari, eflir þitt frumkvæði og hjálpar þér að koma þínum viðfangsefnum í framkvæmd.​

 

Markþjálfi fer yfir markmið í hverju verkefni og finnur út hverju þú vilt ná fram með markþjálfun. Markþjálfi aðstoðar þig við að forgangsraða fyrirliggjandi markmiðum til að einbeita sér að því sem skiptir mestu máli. Þú þarf að greina vel eigin  stöðu og markþjálfinn notar til þess spurningalista, kannanir, verkefni og önnur verkfæri til að finna styrkleika, gildi og tilgang. Síðan aðstoðar markþjálfinn þig við að þróa aðgerðaráætlun til að ná þeim árangri sem stefnt er að.

VIRKAÐU býður upp á markþjálfun, námskeið, fyrirlestra og vinnustofur fyrir aðila sem vilja ná meiri árangri og efla sína stöðu í lífinu. Það eru í raun engin takmörk, ef sterkur vilji er til staðar.

Við hjá VIRKAÐU aðstoðum þig við að nýta betur þína hæfileika og reynslu til að ná meiri lífsgæðum. Ef þú er opin/n og tilbúin/n að deila þínum hugsunum, löngunum og takmörkunum, þá nærðu að lifa betra lífi. Markþjálfun hjá VIRKAÐU snýst um þig og er á þínum forsendum.

bottom of page