top of page

Leiðbeiningar um að
taka NBI persónugreiningingu

Til að geta tekið NBI huggreiningu þarft þú að vera með lykilorð frá Virkaðu markþjálfun.

Ef þú hefur það þá heldur þú áfram. Ef þú hefur áhuga á að kaupa NBI-greiningu getur þú sent okkur póst á gudmundur@gordon.is.

Það tekur um það bil 15-25 mín. að svara báðum hlutum greiningarinnar. Við mælum ekki með því að þú byrjir að svara nema þú hafir næði til að klára báða hlutana greiningarinnar frá upphafi til enda, án þess að vera í stressi með að klára.

Ef þú tekur greininguna í tímaþröng eða stressi eykur það möguleikana á að niðurstöðurnar verði ekki eins nákvæmar.

Svona tekur þú greininguna:

  1. Þú byrjar á því að lesa þessar leiðbeiningar af gaumgæfni - frá upphafi til enda!

  2. Smellir svo á takkann hér neðst á síðunni sem færir þig á vefsíðu NBI.

  3. Sláðu inn tölvupóstfangið þitt sem notendanafn og lykilorðið í "password" reitinn 

  4. Þú velur tungumálið í valmynd 2 - EKKI smella á Íslenska fánann í fyrstu valmyndinni. Hægt er að taka greininguna á 14 tungumálum - þar á meðal á íslensku.

  5. Ef þú ert að taka tvær greiningar (t.d. ef þú ert að undirbúa þig fyrir námskeiðið „Sjórnandinn sem markþjálfi“ þá er sú fyrri (Adult) á íslensku en sú seinni (Leadership) eingöngu á ensku.

  6. Fylgdu leiðbeiningunum vel í greiningunni sjálfri, andaðu með nefinu og svaraðu með hjartanu með það að leiðarljósi hvernig þú ert en ekki hvernig þig langar til að vera eða hefur á tilfinningunni að ætlast er til að þú sért í vinnunni. :-)
     

Flestar huggreiningar eru tvískiptar.

  1. Fyrst færðu 30 skjámyndir þar sem þú þarft að forgangsraða 4 fullyrðingum í forgangsröð út frá þínu eigin gildismati og tilfinningu, því sem á best við þig. Fylgdu innsæi þínu. Þetta er eingöngu fyrri hluti greiningarinnar. Algengurstu mistökin sem fólk gerir er að halda að greiningunni sé lokið á þessum tímapunkti. Haltu áfram í næsta hluta.

  2. Þar birtast þér 16 skjámyndir með fjórum spurningum á hverri skjámynd. Þar velur þú eina fullyrðingu/staðhæfingu umfram aðra. Hér muntu í einhverjum tilfellum lenda í lítilsháttar vandræðum með að velja á milli fullyrðinga - en það á sér eðlilega skýringu sem við ræðum þegar þú færð niðurstöðurnar afhentar.

bottom of page