top of page

Gerðu lífið innihaldsríkt og gefandi á efri árum

Adult Education Course

Námskeið í Setrinu á Spáni 29. október:

“Betra líf á efri árum”

 

Þegar við eldumst upplifum við stundum að margir hlutir í lífinu breytist og erum í óvissu hvernig eigi að takast á við þá. Í grunnin viljum við öll lifa gefandi og innihaldsríku lífi og sjáum í kringum okkur fólk sem virðist gera þetta. Í raun viljum við öll upplifa að hlæja meira, öðlast hugarró, hafa meiri tíma, njóta tómstunda og hafa gott sjálfstraust.

 

Fortíð okkar er líka mismunandi og þannig höfum við öll eitthvað í bakpokanum. Þetta er samt ótrúlega einfalt. 

Við þurfum að meta á sanngjarnan hátt hver staða okkar er, hverju við viljum breyta inn í framtíðina og byggt á þeirri stöðu setja upp traustvekjandi áætlun um aðgerðir til að breyta. Fyrst og fremst snýst þetta um að breyta hugarfarinu, ná stjórn á eigin hugsun og tilfinningum. Ávinna sér ákveðið hugarfar um að stilla sig af tilfinningalega og opna þannig farveg fyrir þær breytingar sem löngun er til að ná fram.

Við þurfum að skoða hvernig sumir aðrir virðast lifa við betri lífsgæði og líða betur. Þetta snýst oft um að gera eitthvað sem virðist vera erfitt í byrjun, en svo sjálfsagt og auðvelt ef fólk drífur sig í það. Fara á viðburðina, hitta nýtt fólk, tala um jákvæða hluti og finna tilgang í breytingunum sem þarf að gera.

Þegar upp er staðið snýst þetta um að setja sér markmið, finna tilgang í lífinu, upplifa lífið spennandi og sjá gleðina í hlutunum. Hvernig gerið þú þetta? Eins og með allt annað í lífinu, þá lærir þú það. Þetta námskeið snýst um að opna sig fyrir spennandi lífi á þann hátt sem hver aðili getur náð fram miðað við sínar persónulegu aðstæður.

 

Í grunninn snýst þetta um sjö skref:

  1. Mat á persónulegum styrkleikum/veikleikum.

  2. Hverju viltu breyta?

  3. Hvers vegna viltu lifa lífinu betur?

  4. Aðferðarfræði til að ná árangri í að lifa lífinu betur.

  5. Þú er 100% ábyrg/ur fyrir því sem gerist.

  6. Lærðu af mistökunum og að gera betur.

  7. Muna að fagna árangrinum við að lifa lífinu betur.
     

Efnistök á námskeiði:

Kl.11:00     MÆTING

                  - Gerðu betur á efri árum
 

Kl 11:45     KAFFIPÁSA
 

Kl. 11:50    - Náðu árangri um

                     betri lífsgæði á efri árum
 

Kl:13:00     LÉTTUR HÁDEGISVERÐUR

Kl 13:30     - Skapaðu töfra
                     og velgengni 
á efri árum

                  - Athafnasemi við að

                     lifa lífinu betur á efri árum
 

Kl.14:00    KAFFIPÁSA
 

Kl.14:05     - Taktu skrefin 7 fyrir

                     betra líf á efri árum
                  - Framhaldið og
                     skrefin
inn í framtíðina
 

Kl. 15:00    NÁMSKEIÐSLOK

​​​

​​Námskeiðið er fjórir klukkutímar og þar er farið í gegnum ​verkefni og þátttakendur fá verkefni til að taka með sér heim. Þátttaka er takmörkuð við ákveðinn fjölda.  Námskeiðsgjaldið er kr. 4500.- ( eða 30 evrur) og innifalið eru öll námskeiðsgögn og kaffi, te eða vatn og léttur hádegisverður.

Námskeiðið verður miðvikudaginn 29. október í Setrinu, aðstöðu félags Íslendinga á Spáni kl. 11:00-15:00 - skráning hér

​​

 

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Guðmundur G. Hauksson markþjálfi með grunnn- og framhaldsnám í markþjálfun frá Evolvia Advanced Coach Training, umboðsaðili fyrir Gordon Training Internationalmeð meistararéttindi sem LET samskiptaráðgjafi og vottaður sérfræðingur í NBI hugsniði. Hann heldur einnig úti vefsíðunni www.sidferdi.is 

68508427_2471812642908852_2400400347777466368_n_4.jpg

H​vernig virkar markþjálfun?

Markþjálfun er ákveðin aðferðarfræði sem gerir þig virkari, eflir þitt frumkvæði og hjálpar þér að koma þínum viðfangsefnum í framkvæmd.​

 

Markþjálfi fer yfir markmið í hverju verkefni og finnur út hverju þú vilt ná fram með markþjálfun. Markþjálfi aðstoðar þig við að forgangsraða fyrirliggjandi markmiðum til að einbeita sér að því sem skiptir mestu máli. Þú þarf að greina vel eigin  stöðu og markþjálfinn notar til þess spurningalista, kannanir, verkefni og önnur verkfæri til að finna styrkleika, gildi og tilgang. Síðan aðstoðar markþjálfinn þig við að þróa aðgerðaráætlun til að ná þeim árangri sem stefnt er að.

VIRKAÐU býður upp á markþjálfun, námskeið, fyrirlestra og vinnustofur fyrir aðila sem vilja ná meiri árangri og efla sína stöðu í lífinu. Það eru í raun engin takmörk, ef sterkur vilji er til staðar.

Við hjá VIRKAÐU aðstoðum þig við að nýta betur þína hæfileika og reynslu til að ná meiri lífsgæðum. Ef þú er opin/n og tilbúin/n að deila þínum hugsunum, löngunum og takmörkunum, þá nærðu að lifa betra lífi. Markþjálfun hjá VIRKAÐU snýst um þig og er á þínum forsendum.

bottom of page