Viltu gera eithvað spennandi?
Settu þín eigin viðmið og vertu með á hreinu hvað þú stendur fyrir. Ég eyddi stórum hluta ævinnar í að hlusta á aðra mæla mig og meta. Stundum fannst mér þessar umsagnir meiða mig og samt virkaði ég sjálfsagt oft með mikið sjálfstraust en á bak við það gat verið brotinn hugur með brostnar vonir.
Ég var greindur með krabbamein árið 2011 og var þá svo lánsamur að kynnast markþjálfun og í gegnum það nám lærði ég að byggja upp heilbrigt sjálfstraust og leggja grunn að jákvæðari sýn á sjálfan mig. Ég kynntist líka hugmyndafræði Gordon Training International í leiðtoga- og samskiptafærni og er í dag umboðsaðili fyrir Gordon Training International á Íslandi. Þetta skilaði mér grunni að nýjum starfsferli.
Í dag upplifi ég mig sem öfluga persónu byggt á eigin forsendum og viðmiðunum. Ég stjórna mínum tilfinningum betur og hef lært að dvelja ekki í slæmum hugsunum. Í dag er ég ekki eins viðkvæmur fyrir gagnrýni og athugasemdum og lít meira á það sem eithvað til að gera mig enn betri. Í dag hlusta ég vel á fólk sem gerir athugasemdir um mig og met hvort ég geti notað þær til að bæta mig.
Hvað hefur svo raunverulega breyst? Ég er ennþá sami aðilinn en er orðinn öflugri með því að byggja upp betri tilfinningastjórnun og læra að dvelja meira í núvitund. Í dag rek eigið fyrirtæki í mannauðsmálum, er mikið í markþjálfun og upplifi ánægju á hverjum degi.
Það sem gefur mér mest er að sjá aðra vaxa. Í dag er ég að einbeita mér að stuðningi við frumkvöðla og fólk sem langar að gera meira og setja eithvað nýtt í gang. Fólki sem langar að leggja grunn að nýju og spennandi umhverfi til að skapa sér betri framtíð.